miðvikudagur, nóvember 16, 2005

25 dögum síðar vaknaði það til lífsins...

Fátt, frásögum færandi, drifið á daga mína undanfarið en því áhugaverðara...

Varla hefur Eddan farið fram hjá mörgun en ekki vita allir að í ár var tekið upp á því að gefa ungum og upprennandi kvikmyndagerðarmönnum færi á því að senda sínar myndir inn í stuttmyndakeppni Íslensku Kvikmynda- og Sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA). Nú, við Bjarni sendum myndina sem við unnum veturinn 2003-2004, ALLT, inn og leist ÍKSA-mönnum vel á. Hún var sumsé ein þriggja mynda sem komust í úrslit en vegna höfundarrétar á tónlist í myndinni var henni... Tjah, ekki leyft að vera með... („Vísað úr keppni“ er allt of groddaralegt). Þetta er auðvitað mikilfenglegt boost fyrir okkur Bjarna og erum við staðráðnir í að gera enn betri mynd fyrir næstu stuttmyndakeppni ÍKSA.

Á morgun skrái ég mig í nám í Iðnskólanum í Reykjavík. Námið sem um ræðir er margmiðlunarnám og heitir brautin því einkennilega nafni „Margmiðlunarskólinn,“ þrátt fyrir að vera hluti af Iðnskólanum. En hvað um það! Við Eygló og Ívar fórum í dag í leiðangur til að forvitnast um brautina og hvernig væri að komast inn á hana og virðumst við öll uppfylla sett skilyrði til þess. Það þarf vart að taka fram að ég er spenntur, mér leið ekki svona vel þegar ég var að skrá mig í sálfræðina og hlýtur það að gefa auga leið að í kvikmyndagerð liggur áhugasvið mitt!

Ég er fullur tilhneigingar... ég meina tilhlökkunar fyrir framtíðinni og hefur ekki liðið svona rosalega vel langa lengi. Samgleðjist mér nú með því að rísa úr sætum, banka þrisvar í nærliggjandi tréborð eða -vegg og fara með ðirovriðaf kabárutfa. Nema. Ufílei ða, niðrýd go nniruttám, ðikír re ttiþ ívþ.

3 Comments:

Blogger Ívar said...

Faðir vor..
keep it real

Aight battyboy

01:14  
Anonymous Sunna Elín said...

já þetta er frekar mikill bummer með myndina...eygló sagði mér frá þessu. frekar leiðó! en þú vinnur þá bara á næsta ári sæti ;)

01:20  
Anonymous Nafnlaus said...

líst vel á þetta hjá þér pálmar minn :)
maríjon

20:08  

Sendu inn athugasemd

<< Home