laugardagur, október 22, 2005

Jæja elskurnar, það er svosem ekki hægt að fara svona með ykkur að skrifa ekki langa lengi.

Síðasta færsla var sumsé fyrir 20 dögum og ætla mætti að eitthvað hafi drifið á daga mína síðan þá, jú, satt er það.

Helgina 7.-9. október var seinasta spiliríishelgi hjá Acoustic, trúbador dúettnum sem Kjartan bróðir minn og vinur hans, Jói, skipa. Sömu helgi héldu Sunna Elín, sætabæt, og Gummi krúttípútt, kærastinn hennar, innflutningspartý, þ.e. á föstudeginum. Þar gerðist eitthvað sem mér fannst allveg ægilega spennandi, en nánar er hægt að lesa um það á blogginu hans Ívars og sjá á myndasíðu XoXoTa gengisins.

Helgin 14.-16. október var athyglinni beint að *völlum þar sem Kjartan og Eygló héldu loksins upp á það að eiga sína eigin íbúð, sumsé annað innflutningspartý á... föstudeginum minnir mig. Mikið gaman og mikið grín, rokkþema og allir drukku eins og svín. Um þetta ágæta teiti má einni lesa einmitt hjá Ívari en hann bíður einnig upp á eitthvað af myndum, nú og XoXoTa gengið sparaði ekki minniskortið, A og B.

Frá 6. október til 18. var ég housesitter hjá minni ástkæru og ilhýru systur Huldu. Hún var nebbla í smá útlandaferð. Einhver sigling sem hún vann, sigldi með einhverjum 13 öðrum undan ströndum Marmaris. Þeir sem átta sig ekki á þessu eru ekki módel... :/

Nú, ég er hættur í Háskólanum. Einum of mikið að fara í bíó í 10 klst. á viku. That's about all I have to say about that. :|

The Descent um daginn. Mæli með henni fyrir hryllingsmyndaáhugamenn.

Gaurinn sem eyddi kommentinu mínu sem ég nefndi hérna um daginn meinti ekkert illt með því... Fannst það bara einhverra hluta vegna ekki við hæfi... :/ O, jæja, hann um það. :)

Segjum þetta gott í bili elskurnar. Munið bara að mér þykir væntum ykkur, hvaððð svosem þið eruð. >:)