fimmtudagur, september 29, 2005

Aaaahh. :) Það jafnast ekkert á við að læra sína lexíu.

Er sumsé að baxla við að læra fyrir próf í Almennri sálfræði sem þreytt verður á laugardaginn næstkomandi. Lexían sem ég er að læra er að trassa ekki heimanámið... :/ Mæli ekki með því. Lesefnið er 200 bls. texti með svona símaskráarletri, eitthvað í kringum 110.000 orð. Svo skal man mixa einhverja bévítans ritgerð fyrir mánudag... „Dugar lært hjálparleysi til að skýra þunglyndi“ - eitthvað álíka. Mér líst held ég ekkert á þetta. Þetta er samt mjög skemmtilegt.

Var særður um daginn... Kommentaði á færslu hjá bloggsíðu kunningja míns. Var mjög hugljúf færsla hjá honum svo ég sagði, eins og er, að mér þætti vænt um hann. Hann eyðir kommentinu og skrifar: „...Sá sem skrifaði síðustu færslu sem ég var að eyða núna er ekki nettur..takk samt.“ Maður svona veltir fyrir sér hvað viðkomandi meinar... Hmmm...

1 Comments:

Blogger ThP said...

ég sé þig aldrei Pálmar!
kv.
Þuríður

10:03  

Sendu inn athugasemd

<< Home