Þú veist að það er árið 2006 ef.....
1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega leist tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar. EF þú féllst fyrir þessu ...
Aha ekkert svona ! þú féllst fyrir þessu
Blogg já... Er það ekki bara hégómi?
Ég gerði ein reginmistök þegar ég byrjaði á þessu bloggi... Það var að ákveða hvorki markhóp þess né markmið með því... Er ég að þessu fyrir sjálfan mig eða aðra, og þá hverja og af hverju??? Ef satt skal segja, þá er ég ekki allveg viss... Hmmm... ???
Mæli með að fólk skoði „PSC“ linkinn hér til hliðar.
...þ.e. ef fólk hefur snefil af áhuga á stafrænni myndvinnslu...
25 dögum síðar vaknaði það til lífsins...
Fátt, frásögum færandi, drifið á daga mína undanfarið en því áhugaverðara...
Varla hefur Eddan farið fram hjá mörgun en ekki vita allir að í ár var tekið upp á því að gefa ungum og upprennandi kvikmyndagerðarmönnum færi á því að senda sínar myndir inn í stuttmyndakeppni Íslensku Kvikmynda- og Sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA). Nú, við Bjarni sendum myndina sem við unnum veturinn 2003-2004, ALLT, inn og leist ÍKSA-mönnum vel á. Hún var sumsé ein þriggja mynda sem komust í úrslit en vegna höfundarrétar á tónlist í myndinni var henni... Tjah, ekki leyft að vera með... („Vísað úr keppni“ er allt of groddaralegt). Þetta er auðvitað mikilfenglegt boost fyrir okkur Bjarna og erum við staðráðnir í að gera enn betri mynd fyrir næstu stuttmyndakeppni ÍKSA.
Á morgun skrái ég mig í nám í Iðnskólanum í Reykjavík. Námið sem um ræðir er margmiðlunarnám og heitir brautin því einkennilega nafni „Margmiðlunarskólinn,“ þrátt fyrir að vera hluti af Iðnskólanum. En hvað um það! Við Eygló og Ívar fórum í dag í leiðangur til að forvitnast um brautina og hvernig væri að komast inn á hana og virðumst við öll uppfylla sett skilyrði til þess. Það þarf vart að taka fram að ég er spenntur, mér leið ekki svona vel þegar ég var að skrá mig í sálfræðina og hlýtur það að gefa auga leið að í kvikmyndagerð liggur áhugasvið mitt!
Ég er fullur tilhneigingar... ég meina tilhlökkunar fyrir framtíðinni og hefur ekki liðið svona rosalega vel langa lengi. Samgleðjist mér nú með því að rísa úr sætum, banka þrisvar í nærliggjandi tréborð eða -vegg og fara með ðirovriðaf kabárutfa. Nema. Ufílei ða, niðrýd go nniruttám, ðikír re ttiþ ívþ.
Jæja elskurnar, það er svosem ekki hægt að fara svona með ykkur að skrifa ekki langa lengi.
Síðasta færsla var sumsé fyrir 20 dögum og ætla mætti að eitthvað hafi drifið á daga mína síðan þá, jú, satt er það.
Helgina 7.-9. október var seinasta spiliríishelgi hjá Acoustic, trúbador dúettnum sem Kjartan bróðir minn og vinur hans, Jói, skipa. Sömu helgi héldu Sunna Elín, sætabæt, og Gummi krúttípútt, kærastinn hennar, innflutningspartý, þ.e. á föstudeginum. Þar gerðist eitthvað sem mér fannst allveg ægilega spennandi, en nánar er hægt að lesa um það á blogginu hans Ívars og sjá á myndasíðu XoXoTa gengisins.
Helgin 14.-16. október var athyglinni beint að *völlum þar sem Kjartan og Eygló héldu loksins upp á það að eiga sína eigin íbúð, sumsé annað innflutningspartý á... föstudeginum minnir mig. Mikið gaman og mikið grín, rokkþema og allir drukku eins og svín. Um þetta ágæta teiti má einni lesa einmitt hjá Ívari en hann bíður einnig upp á eitthvað af myndum, nú og XoXoTa gengið sparaði ekki minniskortið, A og B.
Frá 6. október til 18. var ég housesitter hjá minni ástkæru og ilhýru systur Huldu. Hún var nebbla í smá útlandaferð. Einhver sigling sem hún vann, sigldi með einhverjum 13 öðrum undan ströndum Marmaris. Þeir sem átta sig ekki á þessu eru ekki módel... :/
Nú, ég er hættur í Háskólanum. Einum of mikið að fara í bíó í 10 klst. á viku. That's about all I have to say about that. :|
Sá The Descent um daginn. Mæli með henni fyrir hryllingsmyndaáhugamenn.
Gaurinn sem eyddi kommentinu mínu sem ég nefndi hérna um daginn meinti ekkert illt með því... Fannst það bara einhverra hluta vegna ekki við hæfi... :/ O, jæja, hann um það. :)
Segjum þetta gott í bili elskurnar. Munið bara að mér þykir væntum ykkur, hvaððð svosem þið eruð. >:)
Magnifying hvernig eitt stk. dagsetning getur haft mikil áhrif á líf manns.
Hélt ss. (semsagt) að ég ætti að skila ritgerð á morgun, mánudag 3.10., kl. 17. Er að byrja á henni núna, sunnudag 2.10., kl. 23.45 og stefni að því að vaka næstu, tjah, 16 tíma eða svo að mixa blessaða ritgerðina. Les ég ekki í leiðbeiningum að það eigi bara ekkert að skila henni fyrr en 4.10. og ég er virkilega að íhuga að sleppa bara að skrifa hana núna og taka einmitt áðurnefndann pakka á ritgerðina, nema bara annað kvöld... Hvernig er hægt að vera svona bilaður? Ég fagna því að þurfa ekki að skila ritgerðinni á morgun, en ekki vegna þess að þá hef ég lengri tíma til að vinna hana! Nee ei! Vegna þess að þá get ég trassað það lengur að skrifa hana!!! VoVo spes. :/
Aaaahh. :) Það jafnast ekkert á við að læra sína lexíu.
Er sumsé að baxla við að læra fyrir próf í Almennri sálfræði sem þreytt verður á laugardaginn næstkomandi. Lexían sem ég er að læra er að trassa ekki heimanámið... :/ Mæli ekki með því. Lesefnið er 200 bls. texti með svona símaskráarletri, eitthvað í kringum 110.000 orð. Svo skal man mixa einhverja bévítans ritgerð fyrir mánudag... „Dugar lært hjálparleysi til að skýra þunglyndi“ - eitthvað álíka. Mér líst held ég ekkert á þetta. Þetta er samt mjög skemmtilegt.
Var særður um daginn... Kommentaði á færslu hjá bloggsíðu kunningja míns. Var mjög hugljúf færsla hjá honum svo ég sagði, eins og er, að mér þætti vænt um hann. Hann eyðir kommentinu og skrifar: „...Sá sem skrifaði síðustu færslu sem ég var að eyða núna er ekki nettur..takk samt.“ Maður svona veltir fyrir sér hvað viðkomandi meinar... Hmmm...